Dóra Hansen

dorah

Innanhússarkitekt fhi
dorah(a)eitta.is

Menntun
Árið 1989 útskrifaðist ég sem innanhússarkitekt frá Skolen for Boligindretning (nú Danmarks Designskole) í Kaupmannahöfn. Sama ár var ég gestanemandi við Kunstakademiets arkitektskole með áherslu á lýsingar- og hljóðvistfræði. Vorið 2002 útskrifaðist ég með kennsluréttindi frá Listaháskóla Íslands. Haustið 2009 tók ég grunnáfanga í landslagsarkitektúr og skipulagsfræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands.

Starfsreynsla
Þegar ég kom heim frá námi réð ég mig til starfa hjá Brúnás innréttingum þar sem ég starfaði í fjögur ár við  innréttingahönnun og ráðgjöf. Á árunum 2003-2005 var ég kennari í hönnunargreinum við Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Iðnskólann í Hafnarfirði. Árið 1995 stofnuðum við nokkrir innanhússarkitektar teiknistofuna eittA innanhússarkitektar. Ég hef starfað óslitið með eittA innanhússarkitektum fram til dagsins í dag að fjölbreyttri  innanhússhönnun.

Ég er gefin fyrir fjölbreytt verkefni og hef m.a. verið sýningarstjóri og  verkefnastjóri   fyrir hönd fhi á HönnunarMars. Einnig fæst ég við að hanna húsgögn og hef tekið þátt í nokkrum samsýningum, nú síðast á 10+ húsgagnasýningunni á HönnunarMars 2011.