Bekkur kynntur á sýningu á Austurlandi

Dóra Hansen hannaði bekk úr lerki og steypu fyrir framleiðslu  hjá VHE húseiningum í Fellabæ. Verkefnið er í samvinnu  við Make by þorpið, með það leiðarljós að nota staðabundinn efnivið og staðbunda framleiðslu.  Bekkurinn er framleiddur úr umframsteypu og íslensku lerki eða grisjunarvið frá Hallormsstað. Hann er hugsaður fyrir almenningsrými í þéttbýli og dreifbýli. Lerkið er sérlega góður viður í útuhúsgögn því að viðurinn hefur náttúrulega viðarvörn. Það verða framleiddar fleiri stærðir og gerðir af bekknum. Bekkurinn var kynntur á atvinnuvegasýningu á Austurlandi haustið 2013.

Bekkur - Lerki og steypa